Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II tegund C fyrir 30 gesti í húsi á lóð nr. 7 við Grandagarð. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2017. Gjald kr. 11.000