Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi og eldhús í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Stærð: xx ferm., xx rúmm. Jafnframt er erindi BN052450 fellt úr gildi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017.