Sótt er um breytingu á erindi BN051579 sem felst í því að eitt baðherbergi af tveimur er fellt niður og sjónvarpshol stækkað í íbúð 0204 í húsi á lóð nr. 13-15 við Pósthússtræti. Samþykki meðeigenda dags. 02.05.2017 fylgir erindi ásamt bréfi arkitekts dags. 12.05.2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.