Sótt er um leyfi til að byggja göngubrú sem tengir gönguleið frá Rastagötu að bryggju við Sjóminjasafn og liggur að húsi á lóð nr. 8 við Grandagarð. Erindi fylgir samþykki Faxaflóahafna dags. 24. apríl 2017 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017.