Sótt er um leyfi til að rífa núverandi hús og byggja nýtt tveggja hæða timburhús með risi á steyptum kjallara og fjölga eignum úr tveimur í þrjár þar sem sú þriðja verður tómstundarými í séreign á lóð nr. 16 við Vitastíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2017. Stækkun: 143,5 ferm., 420,2 rúmm. Umsögn Minjastofnunar dags. 19. apríl 2017 fylgir erindi ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 04.05.2017 og bréfi arkitekts dags. 04.05.2017 þar sem óskað er leyfi fyrir niðurrifi eldra húsi. Gjald kr. 11.000
Svar
Synjað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2017.