Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til vesturs og til austurs, byggja rishæð og innrétta fjórar íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Bergþórugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017. Stækkun: 209,1 ferm., 614,2 rúmm. Stærð eftir stækkun, A-rými: 442 ferm., 1.332,2 rúmm. B-rými: 110,6 ferm. Gjald kr. 11.000