Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, byggja slétt gólf í fyrrum bíósal og innrétta sýningarrými þar, aðlaga húsið að algildri hönnun og innrétta veitingastað í flokki II á efri hæð í húsi á lóð nr. 37 við Snorrabraut. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 28. mars 2017, hljóðtækniskýrsla dags. 24. apríl 2017 og bréf hönnuðar dags. sama dag. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.