Sótt er um breytingu á áður samþykktu erindi BN051319 sem felst í því að hætt er við bogadregið þakskyggni ofan á þaki og gluggum á vesturhlið er breytt ásamt því að hætt er við stoðveggi á lóð í húsi á lóð nr. 82 við Úlfarsbraut. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu. Samþykki lóðarhafa á nr. 84 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.