Sótt er um leyfi til að innrétta áður gert útgrafið rými í kjallara og innrétta tómstundaherbergi, geymslu og baðherbergi ásamt því að grafa frá húshlið að norðanverðu á húsi á lóð nr. 21 við Brúnaland. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. mars 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. mars 2017. Stækkun: A-rými 45,1 ferm., 114,4 rúmm. Gjald kr. 11.000