Grensásvegur 16A 01.29.540.7
Síðast Vísað til skipulagsfulltrúa á fundi fyrir 8 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 933
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 4. hæð ofaná Síðumúla 39, mhl. 02, og tvær hæðir ofaná vestari hluta bílgeymslu, mhl. 04 og innrétta 35 íbúðir og rými fyrir atvinnu á jarðhæð húss á lóð nr. 16A við Grensásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. apríl 2017 fylgir erindinu.
Stækkun: 1.474,8 ferm., 4.647,2 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103854 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011531
Síðasta markaðsverð
56.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 364 m² · 05.11.2020
Kaupskrá 1 eign
56.000.000 kr. 05.11.2020
Atvinnuhúsnæði · 364 m² · bygg. 1987 · HMS
Deiliskipulag
Grensásvegur 16a og Síðumúli 37-39
Samþykkt 22.12.2016 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag