Sótt er um leyfi til að breyta 1. og 2. hæð, m. a. búnings og snyrtiaðstöðu starfsfólks, koma fyrir snyrtingu fyrir hreyfihamlaða, koma fyrir nýrri hurð á milli dæluverkstæðis og þvottaaðstöðu og á milli verkstjórnarrýmis og dæluverkstæðis ásamt því að breyta lagerrými á 2. hæð í skrifstofurými í húsi á lóð nr. 8 við Hólmaslóð. Bréf frá hönnuði dags. 7. mars. 2017 og umsögn brunahönnuðar dags. 7. mars. 2017 fylgja erindi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.