Spurt er hvort leyft yrði að færa Hverfisgötu 92, fjarlægja bakstigahús, byggja undir það hæð og kjallara, innrétta tvær íbúðir og verslun á jarðhæð á lóð nr. 88A við Hverfisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. apríl 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. apríl 2017.
Svar
Afgreitt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. apríl 2017.