Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum og ytri sem eru þær helstar að stækkað er milligólf, nýr flóttastigi, ný hurð og iðnaðarhurð er lokuð í mhl 01 í húsinu á lóð nr. 7 - 9 við Rafstöðvarveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. nóvember 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2016. Stækkun vegna milligólfs: 419,8 ferm. Gjald kr. 10.100
Svar
Synjað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2016.