Sótt er um leyfi til að stækka svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar og koma fyrir nýjum svölum á rishæð á húsi á lóð nr. 58 við Flókagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017.