Sótt er um samþykki á þegar uppsettu LED skilti sem er í sömu stærð og kemur í stað skiltis sem verið hefur undanfarin ár á fasteigninni nr. 16 við Vatnagarða. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Synjað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2016.