Sótt er um leyfi til að flytja eldhús og gera 1,9 m breitt op á vegg sem er á milli eldhúss og stofu í íbúð 0402 mhl. 01 í húsi nr. 7 á lóð nr. 5 - 7 við Meistaravelli. Umsögn burðarvirkishönnuðar og lagaskoðunar dags. 6. október 2016 og samþykki eiganda íbúðar 0302 dags. 16. okt. 2016 og 20. nóv. 2016 vegna tengingar lagna við vask inn í íbúð fylgir. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.