Sótt er um leyfi til að klæða með litaðri sléttri álklæðningu sem fest er á málmgrind á útvegg og einangrað með 100 mm steinull á norður-, suður- og vesturhlið húss nr. 39 á lóð nr. 25 - 41 við Fífusel. Fundargerð frá húsfundi sem var haldinn 25. ágúst 2016 fylgir þar sem fjórir af sjö eigendum skrifa undir. Samþykki frá sex af sjö á nr. 41 fylgir . Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir erindinu. dags. ágúst 2016 Gjald kr. 10.100