Spurt er hvort samfara viðhaldi og endurnýjun megi stækka óskráða íbúð í kjallara með því að fjarlægja stiga og gera kjallaraíbúð að séreign, stækka bílskúr og breyta í vinnustofu, gera þaksvalir ofan á bílskúr og koma fyrir geymsluskúr og sorpgeymslu á lóð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Skeggjagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. ágúst 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2016. Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 25.júlí 2016
Svar
Afgreitt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2016.