Sótt er um stöðuleyfi til 12 mánaða fyrir hálfbyggt sumarhús á lóð nr. 2 við Langavatnsveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. ágúst 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2016, einnig samþykki lóðarhafa ódags. og stafesting umsækjanda ásamt svörum ofangreindra við athugasemdum. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.