Spurt er hvort stækka megi jarðhæð Hótels Leifs Eiríkssonar og stækka herbergi á 1. og 2. hæð í rými sem gerir ráð fyrir lyftu samanber deiliskipulag dags. 7.10. 2008 fyrir hótel á lóð nr. 45 við Skólavörðustíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. ágúst 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2016.
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2016.