Sótt er um leyfi til að byggja inndregna hæð ofan á, svalir á bakhlið og innrétta 24 íbúðir á 2. 3. og 4. hæð, einnig að afmarka sérnotafleti á lóð húss nr. 12 við Grensásveg. Jafnframt er erindi BN048915 dregið til baka. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt dags. 28. desember 2016. Stækkun: 558,3 ferm., 1.863,4 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu vísað til aðaluppdrátta A.01 - A.010 dags. 7. september 2016.