Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III, teg. A fyrir 129 gesti á 1. hæð og í kjallara, sjá erindi BN048637 og til að breyta afmörkun íbúðar 0202 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 30 við Klapparstíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. apríl 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2016. Einnig greinargerð um hljóðvist frá Verkís dags. í september 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.