Sótt er um leyfi til að útbúa geymslu núverandi tröppum við aðalinngang, byggja svalir við kvist á rishæð og gera smávægilegar breytingar á innra skipulagi húss, sjá erindi BN049604, á lóð nr. 11 við Fríkirkjuveg. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 5. apríl 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags, 9. mars 2016 og tölvupóstur frá sama aðila dags. 18.5. 2016. Stækkun: 19,6 ferm., 50,0 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlitsá umsóknarblaði. Nikulás Úlfar Másson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Óskar Torfi Þorvaldsson tekur sæti undir þessum lið.