Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049753 þannig að kaffistofa, fundaherbergi, salerni á millipalli eru færðar til og flóttastigi og flóttahurð út frá millipalli eru færðar til í húsinu á lóð nr. 6 við Klettagarða. Tölvupóstur frá hönnuði dags. 9. sept. 2015 fylgir. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.