Sótt er um leyfi til að innrétta nýjan veitingastað í bakhúsi með aðgengi frá Veghúsastíg 9 og breyta notkun veitingahússins í flokk II í rými 0105 á lóð nr. 7 við Veghúsastíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2015. Einnig samþykki meðlóðarhafa nr. 9 og 9A við Veghúsastíg dags. 14. júlí 2014. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. sept. 2015 og yfirlýsing um aðgengi fyrir afnot af sorpflokkun dags. 1. sept. 2015 fylgir. Gjald kr. 9.823