Sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr að vestanverðu, koma fyrir geymslukjallara undir verönd 0102 og steypa lágan stoðvegg á lóðamörkum nr. 6 og 8 við Brekkugerði á lóð nr. 4 við Brekkugerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015. Bílaskúr stærð: 33,4 ferm., 84,9 rúmm. Geymslukjallari: 36,3 ferm., 98,0 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Lagfæra skráningu. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101, 102 og 103 síðast breytt dags. 9. júlí 2015.