Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr plastkubbum frá Varmamót með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan með loftuðu, sléttu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð. dags. 10. júlí 2014 og samþykki eigenda á Bugðulæk 8, dags. 13. júlí 2014. Stærð: 38,7 ferm., 134,9 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdráttar 100-01-04 dags: 20. júní 2015.