Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið, bæta við starfsmannainngangi á suðurhlið og innrétta veitingahús fyrir 280 gesti og brugghús í skrifstofuhúsi á lóð nr. 8 við Grandagarð. Erindi fylgir jákvæð umsögn skipulagsfulltrúa vegna fsp. um sams konar erindi dags. 30. janúar 2015 og greinargerð um brunavarnir dags. 13. apríl 2015. Gjald kr. 9.823