Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III á 1. hæð, byggja viðbyggingu við suðurhlið fyrir stýribúnað vatnsúðakerfis og sorpgeymslu, stækka sorpgeymslu á vesturhlið og koma fyrir palli fyrir útiveitingar sunnan húss á lóð nr. 121 við Hringbraut. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2015. Stækkun: 70,5 ferm., 222,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2015.