Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048003 þannig að innra skipulagi er breytt, komið er fyrir eldhúsi með matsal, innréttaður salur fyrir líkamsræktaraðstöðu og endurskoðuð brunamál á 4. og 5 hæð, fækkað er brunastigum á suðurhlið úr tveimur í einn, leyfilegur gestafjöldi er aukinn úr 187 í 236 og herbergjum fjölgað úr 52 í 61 herbergi í gistiskála í húsi á lóð nr. 121 við Hringbraut Bréf frá hönnuði dags. 24. mars. 2015 og bréf frá umsækjanda um rekstur hótels. Gjald kr. 9.823