Sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja kvisti, koma fyrir nýjum stiga milli hæða, stækka svalir og breikka inngangströppur og útbúa nýjan inngang fyrir íbúðir 0101 og 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 63 við Víðmel. Jákvæðar fyrirspurnir BN048310 dags. 14. október 2014 og BN048437 28. október 2014 fylgja erindinu. Samþykki meðlóðarhafa á A4 teikningum dags. 15.jan. 2015 fylgir erindinu. Samþykki meðlóðarhafa á A4 teikningum dags. 15 jan. 2015 fylgir erindinu. Stækkun: 97,0 ferm., 276,0 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 10-01, 10-02 og 10-03 dags. 15. janúar 2015.