Sótt er um leyfi til að skrá samkomusal Ferðafélags Íslands til veislu- og fundahalda í flokk III, tegund g, í kjallara húss á lóð nr. 6 við Mörkina. Bréf frá umsækjanda. dags. 4. janúar 2015 fylgir erindi. Meðfylgjandi er einnig bréf Ferðafélags Íslands, ódagsett staðfesting á brunaviðvörunarkerfi, staðfesting á neyðarlýsingu og skoðunarskýrsla slökkvitækja. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.