Sótt er um leyfi til að fjarlægja hús sem fyrir er og byggja steinsteypt hús, fjórar hæðir og kjallara með verslun á jarðhæð og í kjallara og sex íbúðum á 2. til 4. hæð á lóð nr. 30 við Klapparstíg. Erindi fylgir greinargerð hönnunarstjóra, yfirlýsing um hönnun raflagna, yfirlýsing um hönnun lagna og burðarvirkis og útreikningur á varmatapi dags. 5. janúar 2015. Niðurrif: 166 ferm., 341,8 rúmm. Nýbygging: Kjallari 272,8 ferm., 1. hæð 214,7 ferm., 2. hæð 183,8 ferm., 3. og 4. hæð 176,6 ferm. Samtals 861,9 ferm., 3.076,1 rúmm. Gjald kr. 9.500