Sótt er um leyfi til að gera svalir á rishæð, innrétta tvö svefnherbergi í risi, baðherbergi í kjallara og breyta innra skipulagi, m. a. innrétta þvottaherbergi og geymslu í bílgeymslu einbýlishúss á lóð nr. 46 við Bergstaðastræti. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1og 2 síðast breytt 16. desember 2014.