Spurt er hvort leyfi fengist til að vera með vínveitingar í flokki II í hárgreiðslustofu mhl. 02 rými 0101 í húsi á lóð nr. 178 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. desember 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.