Spurt er hvort byggja megi svalir úr timbri og stáli, m.a. sem flóttaleið í eldsvoða við efri hæð einbýlishúss á lóð nr. 158 við Sogaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. desember 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014 enda verði sótt um byggingarleyfi.