Sótt er um samþykki á áður gerði íbúð þar sem bílskúr, mhl. 02 er breytt í íbúð, einnig er sótt um leyfi til að breyta hurð í glugga og byggja þak yfir bílastæði við hús á lóð nr. 5 við Túngötu. Sbr. fyrirspurn BN048211 dags. 16. september 2014 og meðfylgjandi umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2014. Stærðir mhl. 02: 59 ferm., 192,3 rúmm. Óbreytt. Þak yfir bílastæði: 60,1 ferm., 192,3 rúmm. B-rými. Gjald kr. 9.500