Sótt er um leyfi til að koma fyrir aðstöðu fyrir verkun og grillun á kjúklingi í eldhúsi á 1. hæð, einingu 151, ásamt tilheyrandi útblæstri og að koma fyrir loftræstum gasskáp fyrir utan eldhús Hagkaupa í verslanamiðstöðinni Kringlunni á lóð nr. 4-12 við Kringluna. Meðfylgjandi er bréf Verkís dags. 14. október 2015. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.