Sótt er um leyfi til að samþykkja ósamþykkta íbúð í kjallara, setja nýja glugga á vesturhlið, stækka núverandi glugga á suður- og vesturhlið og tengja geymsluskúr á lóð við rafmagn, sbr. fyrirspurn BN048207, sem fékk jákvæða umfjöllun, við hús á lóð nr. 34 við Ránargötu. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 7. október 2014, samþykki eigenda á nr. 36 og samþykki eigenda á nr. 34 fór með fyrirspurn. Meðfylgjandi einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27.1. 2015, bréf arkitekts dags. 17.3. 2015 Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 01, 02, 03 dags. 15. febrúar 2015.