Sótt er um leyfi til að byggja hæð og kjallara og þaksvalir þar ofan á og sólstofu að hluta til við norðvestur hlið hússins á lóð nr. 10 við Arnargötu. Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. september 2014 fylgir erindinu. Stærðir: fyrir, 131,7 ferm., stækkun, 54 ferm., eftir, 185,7 ferm., fyrir, 340,9 rúmm., stækkun 156,6 rúmm., eftir, 497,5 rúmm. Gjald kr. 9.500