Spurt er hvort innrétta megi tímabundið frá 15. maí - 15. ágúst svefnskála fyrir ferðamenn þar sem nú er veislusalur og söngskóli á veturna á 3. hæð í húsi á lóð nr. 11 við Fákafen. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. september 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2014.