Spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og byggja kvisti, byggja glerskála á suðurhlið og innrétta tvær íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 1 við Teigagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. september 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2014.