Spurt er hvort leyfi fengist fyrir tímabundinni uppsetningu á áhorfendastúku fyrir 4.200 manns í tengslum við Evrópumótið í hópfimleikum sem fram fer á Íslandi dagana 15. - 18 október í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal á lóð nr. 6 við Engjaveg. Áætlað er að hafist verði handa við uppsetningu á stúkunni 8. október og að búið verði að taka stúkuna niður 22. október 2014. Umsögn (tölvupóstur) heilbrigðisfulltrúa dags. 1. ágúst 2014 fylgir erindinu. Brunaskýrsla á ensku dags. 1 júlí 2014 fylgir.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum samanber umsagnir heilbrigðisfulltrúa og forvarnadeildar SHS. Skila skal til byggingarfulltrúa greinagerð um burðarfyrirkomulag áhorfendabekkja