Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum vegna lokaúttektar sbr. BN040042 þannig að hætt er við vindfang á 2. hæð og felldur er út stigi frá svölum út í garð í húsinu á lóð nr. 2 við Þverás. Samþykki frá meðeigendum ódags. fylgir. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.