Sótt er um leyfi til að koma fyrir grilli í söluturni þannig að hann verður veitingaverslun með útsog út um útvegg, upp með útvegg og upp með þakinu á húsinu á lóð nr. 1 við Réttarholtsveg. Samþykki sumra meðlóðarhafa dags. 15. júlí og aftur 23. júlí 2014, Bréf frá umsækjanda dags. 5. ágúst. 2014 fylgja erindi. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Frestað. Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra varðandi ákvæði um samþykki meðlóðarhafa.