Sótt er um leyfi til að stækka bílastæðahús, mhl. 05, í suðvesturhorni þar sem bílakjallari tengist í framtíðinni við Sóltún 1-3 á lóð nr. 7-17 við Mánatún 1-17/Sóltún 1-3. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 25. júní 2014, bréf framkvæmdastjóra Mánatúns hf. dags. 25. júní 2014, bréf arkitekts dags. 1. september 2014 og tölvupóstur arkitekts/framkvæmdastjóra dags. 1. september 2014. Stækkun: 124 ferm., 498,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.