Sótt er um leyfi til að byggja nýjan kvist og stækka annan á vesturhlið, byggja tvo nýja kvisti á austurhlið og klæða og einangra að utan með aluzinkuðu bárujárni hús og bílskúr á lóð nr. 7 við Breiðagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. ágúst 2014 fylgir erindinu. Erindið var sent í grenndarkynningu sem frá 2. júlí til 30. júlí. Engar athugasemdir bárust. Stækkun: 5 ferm., 26,6 rúmm. Gjald kr. 9.500