Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja ca. 15 ferm. garðskála við einbýlishúsið á lóð nr. 13 við Viðarrima. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. maí 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2014.