Spurt er hvort leyft yrði að byggja u.þ.b. 18 fermetra viðbyggingu úr timbri að austurhlið hesthúss (matshl. 41 - hús merkt nr. 17) á lóðinni nr. 4 við Vatnsveituveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. ágúst 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. ágúst 2014 og umsögn stjórnar hestamannfélagsins Fáks dags. 9. júlí 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, og með vísan til umsagnar skipulagfulltrúa dags. 8. ágúst 2014.