Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta hæð og ris með kvistum á götuhlið, byggja svalir á garðhlið og innrétta tvær nýjar íbúðir í fjölbýlishúsi á lóð nr. 78 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2014. Meðfylgjandi er umboð eiganda. Stækkun: 97,7 ferm., 269,6 rúmm. Gjald kr. 9.500